Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir meira en 6 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Fundur með umhverfis- og samgöngu­nefnd alþingis.

Full­trúar bæjar­stjórnar Vest­ur­byggðar og sveit­ar­stjórnar Tálkna­fjarð­ar­hrepps mættu á fund umhverfis- og samgöngu­nefndar Alþingis í dag til að fara yfir þá alvar­legu stöðu sem uppi er vegna vegalagn­ingar Vest­fjarða­vegar um Gufu­dals­sveit.


Skrifað: 3. janúar 2019

Á fundinum var komið á framfæri við nefndina áherslum og hagsmunum sveitarfélaganna um mikilvægi þess að farið verði í vegabætur á Vestfjarðavegi strax. Var nefndin upplýst um að frekari tafir á vegalagningu geti haft alvarleg áhrif fyrir Vestfirði. Þá voru nefndarmenn upplýstir um þau samskipti sem sveitarfélögin tvö ásamt Fjórðungssambandi Vestfjarða hafa átt við sveitarstjórn Reykhólahrepps á síðustu mánuðum. Fulltrúar sveitarfélaganna tveggja lögðu áherslu á að áfram yrði unnið með Þ-H leiðina, þar sem undirbúningur vegna þeirrar vegalagningar er lengra á veg komin en undirbúningur vegna R-leiðarinnar en Vestfirðingar geta ekki beðið lengur eftir fullnægjandi samgöngubótum. Á fundinum voru ekki teknar ákvarðanir en ljóst er að skera þarf á þann hnút sem enn og aftur er kominn upp í þessu máli.

Lilja Magnúsdóttir, Bjarnveig Guðbrandsdóttir, Rebekka Hilmarsdóttir, Iða Marsibil Jónsdóttir og Bryndís Sigurðardóttir