Samtal um fjallskil í Vesturbyggð
Boðað er til fundar um fjallskil í Vesturbyggð þriðjudaginn 25. ágúst kl. 16:00 í ráðhúsi Vesturbyggðar, Aðalstræti 75.
Skrifað: 20. ágúst 2026
Tilgangur fundarins er að eiga samtal um fyrirkomulag fjallskila, ræða reynsluna af framkvæmd þeirra og þau sjónarmið sem uppi eru um fyrirkomulagið til framtíðar.
Bændur, landeigendur og aðrir sem málið varðar eru hvattir til að mæta, taka þátt í samtalinu og koma sínum sjónarmiðum á framfæri.