Hoppa yfir valmynd

Fyrir­hug­aðar malbiks­fram­kvæmdir næstu fjórar vikur

Vegna fram­kvæmda við götur bæjarins þar sem lagt verður malbik yfir nokkrar götur og staði vill Vest­ur­byggð beina þeim eindregnu tilmælum til íbúa að fylgjast vel með hvar fram­kvæmdir verði í gangi hverju sinni og fjar­lægja farar­tæki úr fram­kvæmda­svæðum eins og hægt er á meðan verktími á hverjum stað stendur yfir.


Skrifað: 9. júlí 2026

Hér að neðan má sjá þá staði sem Vesturbyggð áætlar að klára að leggja á í sumar.

 

Bíldudalur
Bíldudlur
Bíldudalur

Grænt er malbik en rautt er klæðning en til stendur að leggja klæðningu yfir Stekka sem þrifalag þar sem eftir er að endurgera götuna í samráði við hönnuði, skipta um lagnir og ákveða stærð og legu stæða en sú framkvæmd er fyrirhuguð á allra næstu árum.

Inni í þessum framkvæmdum hjá Vesturbyggð þarf fyrst að hreinsa af nokkrum götum núverandi yfirborð sem verður gert með stórri gröfu og heflað  áður en malbiksframkvæmdir eiga sér stað.

Öllum þessum verkum fylgja töluverð læti og óþægindi sem Vesturbyggð vonast til að íbúar afsaki í ljósi þess að verið er að vinna að öryggi og fegrun svæða í sveitarfélaginu.

Ef fólk vill svo fá malbikað hjá sér er hér nafn og númer hjá umboðsaðila Malbikun Akureyrar sem sér um niðurlögn en eitthvað bar á því að ekki væri hægt að ná sambandi við réttan aðila í upphafi, það er komið í lag núna.

Jón Smári Sigursteinsson jon@malbikun.is sími 854 2211

Sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs

geir@vesturbyggd.is/+354 450 2300