Hoppa yfir valmynd

Fyrir­lestur fyrir foreldra í Skjald­borg

Mánu­daginn 24. febrúar kl. 20:00–21:00 verður fyrir­lest­urinn Ég er ekki full­kominn haldinn í Skjald­borg­ar­bíói, Aðalstræti 27, á Patreks­firði. Fyrir­lest­urinn er ætlaður foreldrum á sunn­an­verðum Vest­fjörðum og þátt­taka er ókeypis.


Skrifað: 19. febrúar 2026

Í fyrirlestrinum er fjallað á einlægan og hvetjandi hátt um fullkomnunaráráttu, kvíða og sjálfsmynd. Rætt er um hvernig hægt er að stækka þægindaramma sinn, takast á við neikvætt sjálfstal og óraunhæfar kröfur og læra af mistökum til að byggja upp sjálfstraust og vellíðan. Málefnið snertir marga, bæði ungmenni og fjölskyldur þeirra, ekki síst innan íþróttahreyfingarinnar. Miðvikudaginn 25. febrúar verður fyrirlesturinn einnig haldinn fyrir nemendur í Patreksskóla og Bíldudalsskóla.

Viðburðurinn er hluti af fræðsludagskrá íþróttahéraða á Vestfjörðum í samstarfi við svæðisstöðvar íþróttahéraða.