Fyrsti fundur nýrrar bæjarstjórnar Vesturbyggðar
Fyrsti fundur nýrrar bæjarstjórnar Vesturbyggðar fór fram í ráðhúsi sveitarfélagsins á Patreksfirði í dag. Á fundinum var gengið frá skipan í nefndir og ráð sveitarfélagsins ásamt öðrum hefðbundnum verkefnum sem fylgja upphafi nýs kjörtímabils.
Skrifað: 9. júní 2026
Forseti bæjarstjórnar var kjörin Rebekka Hilmarsdóttir, fyrsti varaforseti Jenný Lára Magnadóttir og annar varaforseti Hlynur Ársælsson. Þá var Þórkatla Soffía Ólafsdóttir kjörin formaður bæjarráðs Vesturbyggðar, en í bæjarráð voru einnig kjörin Rebekka Hilmarsdóttir og Hlynur Ársælsson.
„Ég hlakka til samstarfsins með því öfluga fólki sem skipar bæjarstjórn Vesturbyggðar og þakka það traust að fá að leiða bæjarstjórnina til góðra verka fyrir samfélagið allt á kjörtímabilinu.“ segir Rebekka Hilmarsdóttir forseti bæjarstjórnar.
Jafnframt var Gerður Björk Sveinsdóttir endurráðin bæjarstjóri Vesturbyggðar og mun því leiða áfram starf sveitarfélagsins á komandi kjörtímabili. Með þeirri ákvörðun er tryggð áframhaldandi festa í stjórnun sveitarfélagsins og í þeim verkefnum sem unnið hefur verið að á undanförnum misserum.
„Ég er afar þakklát fyrir það traust sem mér er sýnt með þessari ráðningu. Það er bæði ánægjulegt og hvetjandi að fá tækifæri til að halda áfram því öfluga starfi sem hefur verið unnið á síðustu árum. Fram undan eru mörg spennandi verkefni og ég hlakka til að vinna áfram með bæjarfulltrúum, starfsfólki sveitarfélagsins og íbúum að því að byggja upp samfélagið.“ segir Gerður.
Með fyrsta fundi nýrrar bæjarstjórnar hefst formlega nýtt kjörtímabil þar sem áhersla verður lögð á áframhaldandi uppbyggingu sveitarfélagsins, öfluga þjónustu við íbúa og farsælt samstarf við samfélagið allt.