Glæsileg sjómannadagshelgi framundan
Haldið er upp á Sjómannadaginn á Patreksfirði ár hvert. Dagskráin í ár er glæsileg og er ýmislegt skemmtilegt í boði fyrir alla aldurshópa.
Sjómannadagsráð Patreksfjarðar hefur veg og vanda af hátíðinni. Dagskráin hófst í gær, fimmtudag, með Eyfahlaupi, götugrilli og uppistandi í félagsheimilinu. Henni lýkur á sunnudaginn með kaffisölu á vegum kvenfélagsins Sifjar.
