Hoppa yfir valmynd

Góðar gjafir til endur­hæf­ing­ar­deildar

Endur­hæf­ing­ar­deild Heil­brigð­is­stofn­unar Vest­fjarða á Patreks­firði hefur fengið tvö ný æfinga­tæki að gjöf frá kven­fé­lög­unum Hörpu og Sif. Tækin munu nýtast í daglegri þjálfun og endur­hæf­ingu notenda.


Skrifað: 7. maí 2025

Kvenfélagið Harpa gaf Concept2 SkiErg skíðagöngutæki. Tækið byggir á loftmótstöðu og virkjar alla helstu vöðvahópa. Það hentar vel til almennrar styrktar- og þolþjálfunar og má einnig nota í sitjandi stöðu, sem nýtist sérstaklega þeim sem eru í hjólastól.

Kvenfélagið Sif gaf Concept2 BikeErg æfingahjól. Hjólið notar sömu tækni og önnur Concept2 tæki, er með kúplingu eins og reiðhjól og tengist öppum á borð við Zwift og ErgData. Það hentar vel fyrir almenna þolþjálfun og sérstaklega þeim sem eru nýkomnir úr aðgerð á hné og þurfa á endurhæfingu að halda.

Stofnunin þakkar kærlega fyrir gjafirnar sem munu nýtast vel í fjölbreyttri þjálfun fyrir alla þá sem þangað koma.

Á myndinni eru frá vinstri: Petrína Sigrún Helgadóttir formaður kvenfélagsins Sifjar Patreksfirði, Margrét Brynjólfsdóttir sjúkraþjálfari Hvest á Patreksfirði og Nancy Rut Helgadóttir formaður kvenfélagsins Hörpu Tálknafirði.