Hoppa yfir valmynd

Grenja­vinnsla 2026

Sveit­ar­fé­lagið óskar eftir aðilum í grenja­vinnslu fyrir árið 2026. Um er að ræða faglega og ábyrg vinnslu á grenjum í sveit­ar­fé­laginu í samræmi við gild­andi lög og reglu­gerðir.


Skrifað: 21. apríl 2026

Tekið er við umsóknum til og með 4. maí næst­kom­andi. Óskað er eftir umsækjendum fyrir 6 svæði, skv. gömlu hreppaskiptingunni.

  1. Rauðasandshreppur
  2. Patrekshreppur
  3. Barðastrandahreppur
  4. Suðurfjarðahreppur
  5. Ketildalahreppur
  6. Tálknafjarðarhreppur

Til greina kemur að ráða fleiri en einn aðila innan hvers svæðis og skal tekið fram í umsókn um hvaða svæði er sótt. Ákvörðun um ráðningu verður tekin eftir að umsóknarfresti lýkur og miðað er við að umsækjendur hefji störf skv. samkomulagi.

Minnt er á að viðkomandi þarf að hafa gilt skotvopnaleyfi og veiðikort sem framvísa þarf við samning.

Umsóknir skal merkja „Grenjavinnsla 2026“ og er hægt að skila með netpósti á vesturbyggd@vesturbyggd.is eða með bréfpósti

Vesturbyggð

b.t. Sviðstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs.

Aðalstræti 75

450 Patreksfirði

Vesturbyggð vekur athygli á því að ráðnir veiðimenn geta einir skilað reikningum og aðeins þeir sem hafa undirritaðan samning við Vesturbyggð fá greitt fyrir refaskott.

Reikningum skal skila fyrir 1. september 2026 og verður ekki greitt fyrir grenjavinnslu eftir þann tíma. Skilavottorð frá þjónustumiðstöðvum um fjölda skotta er grundvöllur skilagjalds.

Sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs

geir@vesturbyggd.is/+354 450 2300