Hoppa yfir valmynd

Grennd­arkynning — Túngata 40a

Tekin fyrir umsókn Lilju Magnús­dóttur, dagsett 8. desember 2025. Í umsókn­inni er sótt um stækkun lóðar­innar Túngötu 40a til austurs þannig að pláss verði fyrir bíla­stæði við hlið hússins austan við inngang íbúðar.


Skrifað: 14. janúar 2026

Skipulags- og framkvæmdaráð lagði til við heimastjórn Tálknafjarðar á 16. fundi sínum þann 18. desember að samþykkt verði að stækka lóðina til austurs svo lóðin rúmi einnig bílastæði að undangenginni grenndarkynningu. Gera þarf óverulega breytingu á deiliskipulagi fyrir svæðið. Grenndarkynna skal fyrir Túngötu 29 og 31 sem og Móatún 15 og 17.

Heimastjórn Tálknafjarðar samþykkir umbeðna stækkun og felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram.

Samþykkt samhljóða.

Með bréfi þessu er því ykkur gjört kunnugt um áform þessi og óskað er eftir athugasemdum sem skila skal inn í  Skipulagsgátt undir málsnúmerinu 1640/2025.

Frestur til að senda athugasemdir er til  11. febrúar 2026.