Grenndarkynning – Tálknafjarðarhöfn
Á 18. fundi heimastjórnar Tálknafjarðar þann 9. mars 2026 var samþykkt að grenndarkynna breytingu á deiliskipulagi Tálknafjarðarhafnar.
Breytingin fjallar um að skilgreind er ný lóð. Stærð lóðar verður 1086 m2. Innan lóðar er heimilt að reisa byggingu að stærð 455 m2. Vegur á hafnarsvæði er hliðraður aðeins þannig að hann samsvari núverandi legu. Til samræmis er byggingareitur og lóð Strandgötu 29 minnkuð úr 5752 m2 í 4872 m2. Lóð fyrir þvottaplan minnkar úr 553 m2 í 483 m2. Lóðin mun fá staðfangið Hafnarstræti 3.
Frestur til að senda athugasemdir er til 9. apríl 2026.
