Gullkistan Vestfirðir 2025
Vestfjarðastofa stendur að viðburðinum Gullkistan Vestfirðir sem haldinn verður í íþróttahúsinu Torfnesi á Ísafirði, laugardaginn 6. september kl. 12:00-17:00. Skráningarfrestur er til og með 30. júní næstkomandi.
Gullkistan Vestfirðir er metnaðarfull og fjölbreytt sýning sem dregur fram það besta sem Vestfirðir hafa upp á að bjóða í atvinnulífi og menningu. Markmiðið er að sýna Vestfirði sem líflegt og framsækið svæði – svæði sem byggir á sterkum rótum og blómstrar með hugviti í átt að sjálfbærri og farsælli framtíð. Öll fyrirtæki og stofnanir á Vestfjörðum – stór og smá, ný og rótgróin – eru hvött til að taka þátt.
Nánari upplýsingar um viðburðinn og skráningu má finna á heimasíðu Vestfjarðastofu.