Hoppa yfir valmynd

Gull­kistan Vest­firðir — Opin hús á Bíldó um versló

Fyrir­tæki og þátt­tak­endur í Gull­kist­unni á Bíldudal opna dyr sínar, sýna hvað býr að baki og bjóða gestum að kynnast hugviti, menn­ingu og kraft­inum sem mótar svæðið föstu­daginn 31. júlí kl. 15:00-17:00.


Skrifað: 27. júlí 2026

Gullkistan Vestfirðir er lifandi vettvangur þar sem gestir fá að kynnast fólkinu, fyrirtækjunum, menningunni og hugmyndunum sem skapa verðmæti á Vestfjörðum.

Verkefnið dregur fram fjölbreytileikann á svæðinu og býður gestum að sjá hvað gerist á bak við tjöldin hjá fyrirtækjum, stofnunum, listafólki og frumkvöðlum. Þetta er tækifæri til að fá innblástur, mynda tengsl og njóta sín í ekta vestfirskri stemningu.