Gullkistan Vestfirðir — Opin hús á Tálknafjöri
Laugardaginn 25. júlí kl. 12:00-14:00, á bæjarhátíðinni Tálknafjöri, opna fyrirtæki og þátttakendur í Gullkistunni dyr sínar, sýna hvað býr að baki og bjóða gestum að kynnast hugviti, menningu og kraftinum sem mótar svæðið. Komdu í heimsókn og kynntu þér kröftugt atvinnu- og menningarlíf á Tálknafirði.
Gullkistan Vestfirðir er lifandi vettvangur þar sem gestir fá að kynnast fólkinu, fyrirtækjunum, menningunni og hugmyndunum sem skapa verðmæti á Vestfjörðum.
Verkefnið dregur fram fjölbreytileikann á svæðinu og býður gestum að sjá hvað gerist á bak við tjöldin hjá fyrirtækjum, stofnunum, listafólki og frumkvöðlum. Þetta er tækifæri til að fá innblástur, mynda tengsl og njóta sín í ekta vestfirskri stemmningu.
