Halla Guðrún nýr sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Halla Guðrún Jónsdóttir hefur verið ráðin nýr sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og hefur hún þegar hafið störf. Við bjóðum hana hjartanlega velkomna til starfa.
Halla Guðrún er með meistaragráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands, með áherslu á fjármál og verkefnastjórnun, og BS gráðu í viðskiptafræði frá sama skóla með áherslu á markaðsfræði og alþjóðaviðskipti. Hún stundaði jafnframt skiptinám við Paris School of Business, hefur lokið námi í ábyrgum stjórnarháttum frá Opna háskólanum í HR og hefur lokið prófi í verðbréfaréttindum.
Halla Guðrún hefur víðtæka reynslu á sviði fjármála, rekstrar, stefnumótunar og breytingastjórnunar, ásamt samskiptum við hagaðila, stofnanir og eftirlitsaðila.
Hún gegndi síðast starfi framkvæmdastjóra fjármála og rekstrar hjá fjárfestingafélaginu Eyri Invest en hún starfaði hjá félaginu frá árinu 2023. Þar áður starfaði hún í fimm ár hjá Marel, meðal annars sem teymisstjóri fjármálateymis félagsins á Íslandi ásamt því að leiða sjálfvirkni- og umbótaverkefni bæði hérlendis og þvert á starfsstöðvar félagsins í Evrópu. Hún var jafnframt varamaður í stjórn Almenna-Lífsverks lífeyrissjóðs á árunum 2020-2026.
Sem sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs mun Halla Guðrún bera ábyrgð á fjármálastjórn Vesturbyggðar, þar á meðal gerð fjárhagsáætlana og ársreikninga, undirbúningi mála fyrir bæjarstjórn og bæjarráð og ritun fundargerða þeirra, auk stoðþjónustu við önnur svið sveitarfélagsins. Halla Guðrún verður jafnframt staðgengill bæjarstjóra.
