Háskólalestin á Patreksfirði
Háskólalest Háskóla Íslands heimsækir Patreksfjörð dagana 13.-15. maí og býður unga fólkinu, kennurum og íbúum svæðisins upp á sannkallað vísindaævintýri.
Í áhöfn Háskólalestarinnar eru kennarar og nemendur úr fjölbreyttum greinum innan Háskóla Íslands. Miðvikudaginn 14. maí verða þau með fjölbreytt námskeið fyrir nemendur í 5.-10. bekk Patreksskóla þar sem nemendur frá Bíldudalsskóla og Tálknafjarðarskóla taka einnig þátt. Meðal námskeiða í boði eru stjörnufræði, efnafræði, kórallar Íslands, rafstuð, blaða- og fréttamennska, sjúkraþjálfun og gervigreind. Daginn áður, 13. maí, býðst kennurnum grunnskólanna jafnframt að sækja sérstakar smiðjur um gervigreind og náttúruvísindakennslu á vegum kennara í Háskólalestinni.
Fimmtudaginn 15. maí verður Opið vísindahús í Félagsheimili Patreksfjarðar kl. 16:00-18:00. Þar geta gestir á öllum aldri tekið þátt í lifandi og skemmtilegum tilraunum og spreytt sig á spennandi verkefnum: horft upp í himingeiminn, tekið fréttaviðtöl, prófað tól og tæki sjúkraþjálfara, kynnst heimi gervigreindar á ýmsa vegu, séð undir efnafræðinnar hjá Sprengju-Kötu, fræðst um kóralla Íslands og jafnvel kannað hvort það sé hægt að búa til rafhlöðu úr kartöflu! Öll eru hjartanlega velkomin — aðgangur er ókeypis og engin skráning nauðsynleg.
Patreksfjörður er annar áfangastaður lestarinnar í ár en hgún heimsótti einnig Vopnafjörð fyrr í maí og stefnir svo á Suðurland í haust. Frá árinu 2011 hefur lestin ferðast vítt og breitt um landið og miðlað vísinidum með líflegum og fjölbreyttum hætti og um leið lagt áherslu á að styrkja starf grunnskólanna og efla tengsl Háskóla Íslands við samfélög um allt land. Háskólalestin hefur heimsótt hátt á fjórða tug áfangastaða og fengið einstaklega hlýjar móttökur hvert sem komið er. Þá hefur lestin hlotið Vísindamiðlunarverðlaun Rannís.
Hægt verður að fylgjast með lestinni á vef hennar og á Facebook-síðu lestarinnar.
Háskólestin hefur heimsótt hátt á fjórða tug áfangastaða og fengið einstaklega hlýjar móttökur hvert sem komið er. Þá hefur lestin hlotið Vísindamiðlunarverðlaun Rannís.
