Hoppa yfir valmynd

Hátíð­ar­höld 17. júní 2025

Hátíð­ar­höld Vest­ur­byggðar á þjóð­há­tíð­ar­daginn 17. júní 2025 verða haldin á Bíldudal. Öll eru hjart­an­lega velkomin.


Skrifað: 12. júní 2025

Dagskrá

  • 10:00-13:00 — Fjölskylduratleikur um miðbæ Bíldudals, sjá upplýsingar að neðan.
  • 11:00 — Messa í Bíldudalskirkju. Hugleiðingu flytur Gerður Björk Sveinsdóttir.
  • 11:45-13:00 — Andlitsmálun á pallinum á Vegamótum.
  • 13:00 — Skrúðganga. Fer frá planinu við Vegamót að Skrímslasetrinu.
  • 13:15 — Hátíðardagskrá á Skímslasetrinu:
    — Hátíðarræða
    — Ávarp fjallkonu
    — Bæjarlistamaður Vesturbyggðar 2025 tilkynntur
    — Tónlistaratriði
    — Sigurvegarar úr ratleik tilkynntir
    — Karamellukast úr kirkjuturninum

Ratleikur

Á 17. júní verður fjölskylduratleikur um miðbæ Bíldudals. Miðað er við að 2-6 þátttakendur séu í hverju liði. Hvert lið sækir eyðublað og kort af svæðinu á Skrímslasetrið hvenær sem er eftir kl. 10:00. Ratleikurinn tekur um 30-40 mínútur. Þegar liðið hefur fyllt út eyðublaðið er því skilað á Skrímslasetrið hvenær sem er fyrir kl. 13:00. Sigurliðið hlýtur verðlaun.

Hátíðarhöld í Birkimel

Kvenfélagið Neisti og Ungmennafélag Barðstrendinga standa fyrir hátíðarhöldum í Birkimel á Barðströnd, hlekkur á frétt er hér að neðan.

Menningar- og ferðamálafulltrúi

VMÞ

muggsstofa@vesturbyggd.is/+354 450 2335