Hoppa yfir valmynd

Hátíð­ar­ræða 17. júní

Gunn­þórunn Bender, forseti bæjar­stjórnar, flutti hátíð­ar­ræðu á 17. júní hátíð­ar­höldum á Bíldudal.


Skrifað: 18. júní 2025

Góðir gestir. Gleðilegan þjóðhátíðardag.

Við stöndum hér saman á þessum hátíðardegi, 17. júní, þjóðhátíðardegi okkar Íslendinga. Í dag fögnum við 81. árs afmæli lýðveldisins en í 107 ár höfum við verið fullvalda ríki. Í dag fögnum við frelsinu sem forfeður okkar börðust fyrir, sjálfstæðinu og samfélaginu, sem við höldum áfram að móta saman.

Það hefur þurft kjark og þor forfeðra okkar til að berjast fyrir fullveldinu og stofnun lýðveldisins í framhaldinu, en Ísland hafði verið á meðal fátækustu ríkja Evrópu á þessum tíma. Allt frá því hefur íslenska þjóðin verið í stöðugri sókn og baráttu fyrir betri lífskjörum. Hér njótum við betri heilsu en víða annars staðar í heiminum, hér búum við við meira jafnrétti og frelsi, og í nokkuð öruggu landi.

Á Vestfjörðum er gríðarlega mikil gróska og þróttur í atvinnulífinu og uppbygging samfélaganna samhliða því. Þrátt fyrir fámenni Vestfjarða þá höfum við skapað okkur sterka stöðu á landsvísu. Samkvæmt skýrslu KPMG jukust greiðslur Vestfjarða til ríkisins um 40% frá árinu 2019 til 2023 en greiðslurnar hafa haldið áfram að aukast frá þeim tíma. Okkar helsta auðlind er fólkið sjálft. Hugrekki þessi, sköpunargáfa og samstaða. Öll vinnum við saman að því að skapa framtíð sem byggir á sjálfbærni, nýsköpun og umhyggju fyrir náttúru og náunganum.

Í nútímasamfélagi skiptir virðing svo miklu máli, við erum öll ólík bæði í skoðunum, útliti, bakgrunni og lífsreynslu. Að bera virðingu fyrir öðrum er grundvallaratriði í öllum heilbrigðum samskiptum. Virðing eflir traust og skapar opnara og öruggara andrúmsloft.

Framtíðin er sameiginlegt verkefni okkar allra. Við þurfum öll að vinna saman að því að byggja áfram upp öflugt samfélag þar sem atvinnulíf, menning, umhverfisvitund og menntun barnanna okkar er í fyrirrúmi.

Það er ánægjulegt að sjá nýjan Bíldudalsskóla rýsa. Verkefnið er afar brýnt og tímabært en fyrir tilstilli öflugs starfsfólks í Bíldudalsskóla þá hefur gengið að halda úti skólastarfi síðastliðinn vetur þrátt fyrir hrakhóla. Menntun er einn af hornsteinum okkar samfélags. Hún mótar börnin okkar og um leið framtíð okkar allra. Menntun er öflugasta tækið sem við höfum til að jafna tækifæri. Það er okkar að skapa umhverfi þar sem börn fá að læra, vaxa og blómstra. Skólinn hefur fjölbreytt hlutverk, sem snýr ekki eingöngu að því að kenna nemendum námsefnið heldur undirbúa þau undir lífið sjálft, með áherslu á skapandi hugsun, gagnrýnt hugarfar, félagsfærni og samkennd.

Geta sveitarfélagsins eru meiri en oft áður en af nægu er að taka. Heildarfjárfestingar árið 2024 námu tæpum 470 milljónum króna og er ekkert lát á árið 2025, en enn er verið að vinna niður langvarandi innviðaskuld. Miklar fjárfestingar eru í endurgerð gatna og stefnt að miklum malbikunarframkvæmdum árið 2026.

Mikil fjárútlát hafa verið í tengslum við uppbyggingu grunn- og leikskóla, ofanflóðavarnir og í ýmsum verkefnum í hafnarsjóði. Við berjumst af krafti fyrir uppbyggingu hjúkrunarrýma á Patreksfirði og áfram eru samgöngu- og raforkumál í brennidepli.

Við megum ekki sofna á verðinum því verkefnin eru ærin. Það er okkar allra að standa saman og taka öll þátt í að byggja upp gott samfélag þar sem gott er að búa.

Takk fyrir, njótum dagsins og gleðilegan þjóðhátíðardag!