Heimaslóðir — Gönguhópur
Heimaslóðir er gönguhópur í Vesturbyggð sem miðar að því að kynnast svæðinu í gegnum göngur og leiðsögn heimamanna.
Boðið verður upp á bæði styttri og lengri göngur í sumar. Íbúar mega gjarnan stinga upp á leiðum eða bjóða hópnum að ganga um heimaslóðir í Vesturbyggð.
Heimaslóðir eru hluti af verkefninu Ecological Pilgrimage – Umhverfis Vesturbyggð, nánar má lesa um verkefnið á Facebooksíðu og heimasíðu þess. Vesturbyggð er samstarfsaðili verkefnisins.
Áhugasöm um að vera með og jafnvel bjóða göngu um sitt svæði hafi samband við Elvu Björg Einarsdóttur, skipuleggjanda verkefnisins, á elvab@hi.is eða í síma 820 0041.