Hrekkjavökuböll í félagsmiðstöðvunum
Félagsmiðstöðvarnar Vest-End á Patreksfirði og Dímon á Bíldudal standa fyrir hrekkjavökuböllum dagana 29. og 30. október.
Skrifað: 29. október 2026
Hrekkjavökuböll á Patreksfirði
Í félagsmiðstöðinni Vest-End, Aðalstræti 73 á Patreksfirði, verða haldin þrjú hrekkjavökuböll. Gengið er inn í félagsmiðstöðina af efri palli við hárgreiðslustofuna.
Fimmtudaginn 29. október verður hrekkjavökuball fyrir miðstig kl. 19:30–20:30 og fyrir elsta stig kl. 19:30–21:30. Aðgangseyrir er 1.000 krónur fyrir þau sem mæta í búningi og 1.500 krónur fyrir þau sem mæta án búnings.
Föstudaginn 30. október verður hrekkjavökuball fyrir börn frá leikskólaaldri upp í 4. bekk kl. 17:00–18:00. Aðgangseyrir er 1.000 krónur. Boðið verður upp á leiki, fjör og verðlaun.
Hrekkjavökuball á Bíldudal
Félagsmiðstöðin Dímon heldur hrekkjavökuball föstudaginn 30. október kl. 18:00–19:30 í Bíldudalsskóla, Hafnarbraut 5 á Bíldudal.
Aðgangseyrir er 500 krónur fyrir þau sem mæta í búningi og 1.000 krónur fyrir þau sem mæta án búnings. Á ballinu verður búningakeppni og verðlaun veitt.
Öll eru hvött til að mæta og taka þátt í hrekkjavökugleðinni. Böllin eru opin börnum og ungmennum óháð því í hvaða byggðarkjarna þau búa.



Screenshot