Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir u.þ.b. 1 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Íbúa­fundir með heima­stjórn fyrrum Barða­strandar- og Rauðasands­hrepps

Heima­stjórn fyrrum Barða­strandar- og Rauðasands­hrepps boðar til íbúa­funda í Birkimel á Barða­strönd þriðju­daginn 25. mars kl. 16:30 og í kaffi­stofu Minja­safnsins á Hnjóti miðviku­daginn 26. mars kl. 16:30.


Skrifað: 21. mars 2025

Dagskrá fundanna verður sem hér segir:

  1. Formaður heimastjórnar setur fund, kynnir heimastjórn og hlutverk hennar.
  2. Umræða um fjárhagsáætlun næsta árs og verkefni fram undan.

Íbúafundir heimastjórna eru hugsaðir sem fyrsta formlega skrefið í vinnu heimastjórna við fjárhagsáætlunargerð fyrir árið 2026. Heimastjórnin vinnur síðan áfram með þær ábendingar sem fram koma hjá íbúum og tillögur verða lagðar fram til bæjarstjórnar í vinnu við fjárhagsáætlun í haust.

Ritari heimastjórna

LM

liljam@vesturbyggd.is/+354 450 2310