Íbúafundur um brunavarnir í dreifbýli
Miðvikudaginn 18. mars kl. 14:00 verður haldinn íbúafundur um brunavarnir í dreifbýli sveitarfélagsins.
Fundurinn fer fram í félagsheimilinu Birkimel á Barðaströnd.
Aðilar frá Slökkviliði Vesturbyggðar fara yfir brunavarnir almennt og verða með fræðslu til almennings um hvað er hægt að gera fyrir fram og hvernig best er að bregðast við ef eldur verður laus. Áherslan verður á dreifbýli og þar sem lengra er í þjónustu slökkviliðs.
Dagskrá
- Brunavarnir á heimilum fólks.
- Útihús og búpeningur, hvað er hægt að gera fyrir dýrin ?
- Gististaðir og eldvarnareftirlit.
- Gróðureldar.
Þessi fundur er hluti af forvörnum sem slökkviliðið stendur að og allir eru velkomnir að mæta. Fundurinn verður ekki sendur út heldur einungis á staðnum.
