Hoppa yfir valmynd

Íbúa­fundur um ofan­flóða­varnir á Patreks­firði

Ofan­flóða­sjóður og Vest­ur­byggð efna til opins íbúa­fundar um frum­hönnun varna við Litla­dalsá á Patreks­firði, sem er loka­skrefið í vörnum fyrir Patreks­fjörð. Fund­urinn verður haldinn í Félag­heimili Patreks­fjarðar að Aðalstræti 107, mánu­daginn 26. október kl. 18:00.


Skrifað: 23. október 2026

Húsið opnar kl. 17:00 þannig að gestir geta komið fyrir fund, skoðað teikningar og rætt óformlega við fundaraðila.

Dagskrá fundar:

  1. Kristín Martha Hákonardóttir, Ofanflóðasjóði fer yfir stöðu ofanflóðavarnaverkefna á Patreksfirði.
  2. Gísli S. Pétursson, Verkís, kynnir frumathugunarvinnu v. Litladalsár.
  3. Aðalheiður Kristjánsdóttir, Landmótun, kynnir tillögur að mótvægisaðgerðum fyrir svæðið.
  4. Einar Sveinbjörnsson, Veðurvaktinni, kynnir greiningu á áhrifum varna á vindafar og snjósöfnun.

Sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs

geir@vesturbyggd.is/+354 450 2300