Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir u.þ.b. 1 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Íbúa­fundur um samgöngur á Vest­fjörðum

Vega­gerðin, í samstarfi við Vest­fjarða­stofu, býður til opins íbúa­fundar í Félags­heim­ilinu á Patreks­firði þriðju­daginn 18. mars klukkan 17:30.


Skrifað: 13. mars 2025

Fulltrúar frá Vegagerðinni munu fjalla um ýmis samgöngumál sem tengjast svæðinu og boðið verður upp á spurningar og umræður. Gerður Björk Sveinsdóttir, bæjarstjóri Vesturbyggðar, verður fundarstjóri.

Markmiðið með fundinum er að veita íbúum upplýsingar um yfirstandandandi og fyrirhugaðar framkvæmdir, fá innsýn í starfsemi Vegagerðarinnar á svæðinu og koma sínum sjónarmiðum á framfæri.

Til að tryggja að sem flestir geti fylgst með verður fundinum einnig streymt á netinu, auk þess sem hægt verður að senda inn spurningar í gegnum Slido með kóðanum #samgongur.

Allir eru velkomnir, og að sjálfsögðu verður heitt á könnunni.

Dagskrá:

  1. Ávarp — Páll Vilhjálmsson, formaður innviðanefndar fjórðungssambands Vestfirðinga.
  2. Nýframkvæmdir — yfirstandandi framkvæmdir og hvað er framundan. Sigurþór Guðmundsson, verkefnastjóri á framkvæmdadeild.
  3. Jarðgangakostir — farið yfir þá jarðgangakosti sem til greina koma á svæðinu. Guðmundur Valur Guðmundsson, framkvæmdastjóri þróunarsviðs.
  4. Staða vegakerfisins — aldur vega og brúa og hvað er til ráða. Pálmi Þór Sævarsson, svæðisstjóri Vestursvæðis.
  5. Vetrarþjónusta — hvernig er þjónustunni háttað? Bergþóra Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri þjónustusviðs.