Íbúakönnun um byggðabrag
Íbúar eru hvattir til að taka þátt í netkönnun sem er hluti af rannsókn á byggðabrag, sjálfsmynd og ímynd sameinaðrar Vesturbyggðar. Þátttaka íbúa er lykilatriði í að móta sterka og sameiginlega sýn fyrir samfélagið til framtíðar.
Rannsóknarsetur í byggða- og sveitarstjórnarmálum við Háskólann á Bifröst vinnur að rannsókn á áskorunum og tækifærum í sveitarfélaginu eftir sameiningu Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps árið 2024. Verkefnið er unnið í samstarfi við Fjórðungssamband Vestfjarða sem hlaut 9,4 milljóna króna styrk úr sóknaráætlun til verkefnisins Byggðabragur – sjálfsmynd íbúa og ímynd nýs sveitarfélags.
Rannsóknin felur meðal annars í sér viðtöl, netkönnun meðal íbúa og söfnun annarra gagna. Markmiðið er að varpa ljósi á byggðabrag, sjálfsmynd íbúa og ímynd hins nýja sveitarfélags og skapa grunn að skýrri framtíðarsýn.
Mikilvægt er að sem flest taki þátt í könnuninni svo niðurstöðurnar endurspegli fjölbreytt sjónarmið íbúa á svæðinu.
Hlekkur á könnunina er hér en einnig má skanna QR-kóðann hér að neðan.

Survey on Community Identity and Image
Residents are encouraged to participate in an online survey that forms part of a research project on community character, identity and the image of the newly merged municipality. The aim is to gather perspectives that will support future vision and development in the southern Westfjords.
The Bifröst Reasearch Centre is conducting a study on the challenges and opportunities facing the newly merged municipality following the 2024 merger of Vesturbyggð and Tálknafjörður. The project is carried out in cooperation with the Association of Municipalities in the Westfjords, which received a grant from the Regional Development Plan for the project.
The research includes interviews, an online survey among residents and the collection of additional data. Its purpose is to shed light on community character, residents’ self-image and the overall image of the new municipality, and to provide a foundation for a clear future vision.
Broad participation is essential to ensure that the findings reflect the diverse perspectives of residents. Active involvement will play a key role in shaping a strong and shared vision for the community’s future.
The link to the survey in English is available here, and you can also scan the QR code above.