Íbúar geta fengið tré á Bíldudal
Íbúum á Bíldudal gefst kostur á að fá tré af framkvæmdasvæði ofanflóðavarna dagana 17.–25. október 2026.
Á tímabilinu geta íbúar farið inn á framkvæmdasvæðið, valið sér tré sem þar eru og fengið þau til eigin nota.
Verktaki á svæðinu getur veitt aðstoð við að færa trén. Fyrirkomulag aðstoðar er í umsjón Jennýjar Magnúsdóttur hjá Borgarverki. Hægt er að hafa samband við hana með því að senda póst á netfangið jenny@borgarverk.is
