Hoppa yfir valmynd

Íbúar sameinast um töfra Tálkna­fjarðar

Byggða­þró­un­ar­verk­efnið Töfrar Tálkna­fjarðar hófst form­lega með íbúa­þingi dagana 30. og 31. október. Yfir fjórð­ungur íbúa Tálkna­fjarðar tók þátt og ræddi framtíð byggð­ar­lagsins, helstu áskor­anir og tæki­færi til uppbygg­ingar.


Skrifað: 4. nóvember 2026

Á íbúaþinginu voru 26 málefni til umræðu að tillögu íbúanna sjálfra. Samgöngumál voru efst í forgangsröðun en atvinnumál fengu einnig mikið vægi. Meðal þess sem rætt var voru tækifæri í sjávarútvegi, landbúnaði og ferðaþjónustu auk húsnæðismála, skólamála, heilbrigðisþjónustu og aðstöðu til útivistar.

Nemendur Tálknafjarðarskóla lögðu einnig sitt af mörkum með hugmyndum og ábendingum sem kynntar voru á þinginu. Þau lögðu meðal annars áherslu á kosti þess að búa í litlu samfélagi og komu með hugmyndir um bætta aðstöðu og fjölbreyttara skólastarf.

Næstu skref verkefnisins

Nú verður unnið úr niðurstöðum þingsins og þær nýttar við gerð verkefnisáætlunar til fimm ára. Stefnt er að því að kynna drög að áætluninni á íbúafundi í upphafi árs 2027. Í kjölfar samþykktar hennar verður opnað fyrir umsóknir í Frumkvæðissjóð Töfra Tálknafjarðar.

Nánari upplýsingar um verkefnið má nálgast á Facebooksíðu þess og heimasíðu Byggðastofnunar.

Myndir fengnar af heimasíðu Byggðastofnunar, myndasmiður var Kristján Þ. Halldórsson.