Íbúðir lausar til leigu á Bíldudal
Brák íbúðafélag hses. auglýsir eftir umsóknum um leigu á íbúðum við Hafnarbraut 9, Bíldudal. Um er að ræða eina 2ja herbergja, 51,8m² íbúð og tvær 3ja herbergja, 76,7m² íbúðir.
Markmið Brákar íbúðafélags hses. er að bæta húsnæðisöryggi tekju- og eignaminni fjölskyldna og einstaklinga.
Um útleigu íbúðarinnar gilda lög um almennar íbúðir nr. 52/2016, í lögunum/reglugerð eru tilgreind tekju- og eignamörk ásamt viðmiði um greiðslubyrði leigu.
Uppbygging þessara íbúða er í samræmi við húsnæðisáætlun Vesturbyggðar og er gott dæmi um blandað samstarfsverkefni þar sem húsnæðisstuðningur sveitarfélagsins og ríkisins er nýttur til uppbygginga íbúð utan höfuðborgarsvæðisins.
Umsókn um leigu
Umsókn skal senda á netfangið brakibudafelag@brakibudafelag.is, með upplýsingum um hagi og húsnæðisstöðu umsækjenda ásamt afriti af síðasta skattframtali og afriti af þremur síðustu launaseðlum umsækjenda.