Innritun í leikskóla fyrir næsta vetur
Komið er að því að huga að leikskólaplássi fyrir næsta vetur, en aðalinnritun í leikskólana fyrir veturinn 2025-2026 mun hefjast í byrjun maímánaðar.
Innritun í leikskóla í Vesturbyggð fer fram í tveimur þrepum. Í fyrsta þrepi er unnið úr þeim umsóknum sem berast í aðalinnritun á hvert og er þeim börnum úthlutað plássi eftir aldri. Í öðru þrepi er unnið úr umsóknum sem berast eftir að aðalinnritun líkur og er þeim börnum úthlutað plássi eftir því sem mögulegt er hverju sinni.
Aðalinnritun í leikskóla Vesturbyggðar fyrir veturinn 2025-2026 mun hefjast í byrjun maímánaðar. Þá fá foreldrar væntanlegra nemenda sendan tölvupóst með upplýsingar um aðlögun. Til þess að umsókn sé tekin með í aðalinnritun skólanna þarf hún að berast í síðasta lagi 21. apríl 2025. Sótt erum leikskólapláss á íbúagáttinni efst á heimasíðu Vesturbyggðar.
Sækja má um leikskóla frá fæðingardegi barns eða strax og kennitala þess hefur verið skráð. Skilyrði fyrir leikskólaplássi er að foreldri og barn eigi lögheimili í Vesturbyggð en hægt er að sækja um leikskólapláss ef lögheimili er væntanlegt, þó úthlutun og upphaf leikskólavistar eigi sér ekki stað fyrr en lögheimili er komið.
Nánari upplýsingar um innritun í leikskólana má nálgast hjá hverjum skóla fyrir sig:
- Araklettur á Patreksfirði: Bergdís Þrastardóttir, araklettur@vesturbyggd.is
- Tjarnarbrekka á Bíldudal: Lilja Rut Rúnarsdóttir, liljarut@vesturbyggd.is
- Vinabær á Tálknafirði: Jessika Aritzable Guerrero, jessika@vesturbyggd.is