Hoppa yfir valmynd

Íþrótta­kennari

Leitað er að metn­að­ar­fullum, sjálf­stæðum og dríf­andi starfs­manni með mikla þekk­ingu og áhuga á skóla­starfi. Um er að ræða 100% starf. Starfið hefur fasta starfs­stöð á Patreks­firði en felur jafn­framt í sér mögu­leika á kennslu við tvo aðra grunn­skóla innan Vest­ur­byggðar.


Skrifað: 5. maí 2026

Í grunnskólum Vesturbyggðar er gróskumikið skólastarf en meðal áherslna skólanna er faglegt lærdómssamfélag, einstaklingsmiðað nám, leiðsagnarnám og samþætting námsgreina þar sem grunnþættir menntunar endurspeglast í skólastarfi. Íþróttalíf er gott og fjölbreytt og margir möguleikar fyrir öflugan íþróttakennara. Íþróttaaðstaða er mjög góð.

Starfssvið

  • Annast almenna íþrótta- og sundkennslu fyrir skólana
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
  • Vinna samkvæmt stefnu skólanna
  • Vinna að því að skapa gott andrúmsloft í skólunum og tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Hæfniskröfur

  • Leyfi til að nota starfsheitið kennari
  • Sérhæfð hæfni í kennslu íþrótta
  • Hefur ánægju af að starfa með börnum og unglingum
  • Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum
  • Getur tileinkað sér skólastefnu grunskólanna, svo sem Uppeldi til ábyrgðar, Heillaspor og fleira
  • Góðir skipulagshæfileikar
  • Faglegur metnaður

Umsóknarfrestur er til og með 22. maí 2026

Laun eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag. Umsækjendur mega hvorki hafa hlotið refsidóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga (kynferðisbrot), nr. 19/1940 frá því að hann var sakhæfur (15 ára) né hafa hlotið refsidóm fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, á síðastliðnum fimm árum. Rétt er að vekja athygli á því að við ráðningu er heimilt að sækja upplýsingar úr sakaskrá.

Umsókn um starf skal fylgja skrá yfir menntun og starfsferil og afrit af leyfisbréfi ef við á og upplýsingar um umsagnaraðila.

Frekari upplýsingar gefur Jónína Helga Sigurðard. Berg, skólastjóri Patreksskóla. Umsækjandi er aðstoðaður við að finna húsnæði og veittur er flutningsstyrkur. Umsóknir skulu berast á netfangið joninas@vesturbyggd.is. Vesturbyggð áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

Skólastjóri Patreksskóla

JHSB

joninas@vesturbyggd.is/+354 450 2320