Hoppa yfir valmynd

Íþrótta­skólinn á Bíldudal

Auglýst er eftir starfs­manni fyrir Íþrótta­skólann á Bíldudal. Íþrótta­skólinn á sunn­an­verðum Vest­fjörðum er starf­andi í samfellu við grunn­skóla­hald og er ætlaður börnum í 1. – 4. bekk.


Skrifað: 24. ágúst 2026

Um er að ræða tímavinnu eftir hádegi.

Íþróttaskólinn sækir fyrirmynd sína til HSV en þar hefur verið íþróttaskóli starfræktur frá hausti 2011. Kennslan í skólanum skiptist í tvennt, annars vegar grunnþjálfunarþátt og hins vegar boltaskóla.

Óskað er eftir að viðkomandi getur byrjað sem fyrst.

Hæfniskröfur

  • Hefur ánægju af að starfa með börnum
  • Frumkvæði í störfum
  • Jákvæðni og sveiganleiki í samskiptum
  • Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð

Laun og starfskjör eru í samræmi við kjarasamninga Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Vesturbyggð áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

Frekari upplýsingar veitir Maggý Hjördís Keransdóttir, tómstundafulltrúi og tekur hún einnig á móti umsóknum.

Tómstundafulltrúi

MHK

maggyh@vesturbyggd.is/+354 450 2300