Jólatendranir 2026
Senn verður kveikt á ljósum jólatrjáa á Bíldudal, Tálknafirði og Patreksfirði. Auk þess er öllum boðið á jólasýningu í Skjaldborgarbíói.
Allir bæjarbúar eru hjartanlega velkomnir að vera viðstaddir og gleðjast saman í skammdeginu. Boðið verður upp á heitt súkkulaði og smákökur, dansað verður í kringum jólatréð og fleira. Í Skjaldborgarbíó verður kvikmyndin Músajól sýnd í boði Vesturbyggðar.
Dagsetningar
- Bíldudalur: laugardaginn 21. nóvember kl. 16:00 við félagsheimilið Baldurshaga að Tjarnarbraut 4, beint eftir jólamarkað slysavarnadeildarinnar Gyðu.
- Tálknafjörður: laugardaginn 28. nóvember kl. 16:00 á Lækjartorgi, við gatnamót Strandgötu og Lækjargötu. Foreldrafélag Tálknafjarðarskóla sér um skipulagningu viðburðarins.
- Patreksfjörður: fimmtudaginn 3. desember kl. 16:00 á Friðþjófstorgi, á milli pósthússins og Skjaldborgarbíós. Byrjað er á að drekka kakó og eiginleg dagskrá hefst rúmlega svo börn og foreldrar hafi tíma til að koma sér á staðinn eftir að leikskóla- og frístundastarfi lýkur.
- Bíó: fimmtudaginn 3. desember kl. 17:00 í Skjaldborgarbíói, beint eftir tendrunina á Friðþjófstorgi.
Íbúar eru hvattir til að taka eigin bolla og könnur með sér undir kakóið.
Tímasetningar eru birtar með fyrirvara um að veðurguðirnir verði okkur hliðhollir.
