Hoppa yfir valmynd
Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.

Kennari á yngsta stigi í Patreks­skóla

Patreks­skóli vinnur með Uppbygg­ing­ar­stefnuna að leið­ar­ljósi og einkunn­arorð skólans eru jákvæðni, virðing og samvinna. Fjöl­breyttir kennslu­hættir, einstak­lings­miðað nám, samþætting náms­greina þar sem grunn­þættir mennt­unar endur­speglast í skóla­starfi.


Skrifað: 29. júní 2021

Starfssvið

100% starf kennara með sérhæfða hæfni í kennslu á yngsta stigi.

Menntunar og hæfniskröfur

  • Leyfi til að nota starfsheitið kennari
  • Sérhæfð hæfni á yngsta stigi grunnskóla
  • Lipurð í samskiptum, jákvæðni og sveigjanleiki í starfi
  • Faglegur metnaður
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Áhugi á að starfa með börnum í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  • Reynsla af teymisvinnu kostur

Umsóknarfrestur er til og með 10. júlí 2021

Laun eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélags. Umsækjendur mega hvorki hafa hlotið refsidóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga (kynferðisbrot), nr. 19/1940 frá því að hann var sakhæfur (15 ára) né hafa hlotið refsidóm fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, á síðastliðnum fimm árum. Rétt er að vekja athygli á því að við ráðningu er heimilt að sækja upplýsingar úr sakaskrá.

Frekari upplýsingar gefur Ásdís Snót Guðmundsdóttir, skólastjóri. Umsóknir berast til skólastjóra á netfangið asdissnot@vesturbyggd.is 

Patreksskóli skólastjóri

JHSB

joninas@vesturbyggd.is/+354 450 2320