Hoppa yfir valmynd

Kennari - Patreks­skóli

Vilt þú vera hluti af metn­að­ar­fullum starfs­manna­hópi þar sem skap­andi og fjöl­breyttir kennslu­hættir eru hafðir að leið­ar­ljósi?

Í Patreks­skóla er grósku­mikið skólastarf en meðal áherslna skólans er faglegt lærdóms­sam­félag, einstak­lings­miðað nám, leið­sagn­arnám og samþætting náms­greina þar sem grunn­þættir mennt­unar endur­speglast í skóla­starfi. Lögð er áhersla á teym­is­vinu.


Skrifað: 13. apríl 2026

Starfssvið

100% starf

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leyfi til að nota starfsheitið kennari
  • Reynsla og áhugi á að starfa með börnum á grunnskólastigi
  • Lipurð í samskiptum, jákvæðni og sveigjanleiki í starfi
  • Faglegur metnaður
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Færni í að vinna í teymum og að fjölbreyttum verkefnum
  • Skipulögð vinnubrögð, sjálfstæði og frumkvæði, góðir samskiptahæfileikar og þjónustulund
  • Getur tileinkað sér skólastefnu Patreksskóla s.s. Uppeldi til ábyrgðar, Heillaspor ofl

Umsóknarfrestur er til og með 4. maí 2026

Laun eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag. Umsækjendur mega hvorki hafa hlotið refsidóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga (kynferðisbrot), nr. 19/1940 frá því að hann var sakhæfur (15 ára) né hafa hlotið refsidóm fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, á síðastliðnum fimm árum. Rétt er að vekja athygli á því að við ráðningu er heimilt að sækja upplýsingar úr sakaskrá.

Umsókn um starf skal fylgja skrá yfir menntun og starfsferil og afrit af leyfisbréfi ef við á og upplýsingar um umsagnaraðila.

Frekari upplýsingar gefur Jónína Helga Sigurðard. Berg, skólastjóri Patreksskóla. Umsækjandi er aðstoðaður við að finna húsnæði og veittur er flutningsstyrkur. Umsóknir skulu berast á netfangið joninas@vesturbyggd.is. Vesturbyggð áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

Patreksskóli skólastjóri

JHSB

joninas@vesturbyggd.is/+354 450 2320