Kveðja til Grindvíkinga
Vesturbyggð sendir íbúum í Grindavík sem hafa nú þurft að yfirgefa heimili sýn hlýjar kveðjur og samhug á þessum erfiðu tímum.
Skrifað: 13. nóvember 2023
Hugur sveitarfélagsins og allra landsmanna er hjá ykkur og það er einlæg von okkar að þessar náttúruhamfarir fái farsælan endi og að íbúar Grindavíkur geti snúið aftur til síns heima hratt og örugglega.
Ljóst er að framundan er langt og strangt verkefni og því mikilvægt að taka höndum saman og reyna eftir fremsta megni að veita aðstoð.
Íbúar í Vesturbyggð sem eiga þann kost að geta boðið upp á húsnæði á meðan rýmingu stendur geta skráð sig á lista hér.