Hoppa yfir valmynd

Kven­fé­lagið Sif gefur spjall­bekk í Hóla­garð

Kven­fé­lagið Sif á Patreks­firði hefur fært sveit­ar­fé­laginu spjall­bekk að gjöf í tilefni af 111 ára afmæli félagsins þann 24. október síðast­liðinn. Bekk­urinn hefur verið settur upp í Hóla­garði við Félags­heim­ilið á Patreks­firði og er ætlað að efla samskipti og samveru íbúa.


Skrifað: 3. nóvember 2026

Föstudaginn 30. október 2026 afhenti kvenfélagið bekkinn og tók Gerður Sveinsdóttir bæjarstjóri við gjöfinni fyrir hönd sveitarfélagsins.

Spjallbekkir eru hluti af vitundarvakningu gegn einsemd og einmanaleika en vika einmanaleikans er í byrjun október ár hvert. Bekkirnir eru merktir til að gefa til kynna að sá sem situr þar er opinn fyrir samtali og skapa þannig vinalegt rými til að kynnast nýju fólki.

Hólagarður var sameiginlegt verkefni Kvenfélagsins Sifjar, Lions á Patreksfirði og Slysavarnardeildarinnar Unnar á sínum tíma. Markmiðið var að fegra umhverfið með steinabeði, blómum og huggulegum samverustað. Það er því vel við hæfi að gefa spjallbekk í garðinn til að efla samveru og njóta umhverfisins.

Með gjöfinni vill Kvenfélagið Sif halda áfram að stuðla að öflugu mannlífi á Patreksfirði og hvetja íbúa til að njóta samveru í fallegu umhverfi Hólagarðs.

Guðrún Anna Finnbogadóttir, formaður Kvenfélagsins Sifjar, og Gerður Björk Sveinsdóttir, bæjarstjóri.