Kynning á námi við MÍ
Á morgun, fimmtudaginn 6. ágúst kl. 17:00–18:00, verður haldinn kynningarfundur um framhaldsnám Menntaskólans á Ísafirði á Patreksfirði. Þar gefst áhugasömum kostur á að kynna sér námsframboð, fyrirkomulag námsins og sækja um nám áður en umsóknarfrestur rennur út 16. ágúst.
Frá hausti 2026 býður Menntaskólinn á Ísafirði upp á framhaldsnám á Patreksfirði þar sem námið er skipulagt sem blanda af staðnámi og fjarnámi. Nemendur fá aðstöðu og námsstuðning á Patreksfirði samhliða kennslu og þjónustu frá MÍ. Markmiðið er að skapa öflugt námsumhverfi sem gerir fleiri nemendum kleift að stunda framhaldsnám í heimabyggð.
Kynningarfundurinn fer fram í Skor, Aðalstræti 53 á Patreksfirði. Fulltrúar skólans verða á staðnum og kynna námsframboð, svara spurningum og veita upplýsingar um námið.
Umsóknarfrestur um nám fyrir komandi skólaár er til 16. ágúst og er fundurinn því gott tækifæri fyrir þá sem eru að íhuga nám á framhaldsskólastigi að kynna sér þá möguleika sem standa til boða.
