Kynning á verkefninu Umhverfis Vesturbyggð
Elva Björg Einarsdóttir heldur kynningu á verkefni sínu „Umhverfis Vesturbyggð“ í Vanteyrabúð þriðjudaginn 21.apíl kl 17:30
Skrifað: 15. apríl 2026
Hugmyndin að verkefninu kviknaði þegar hún vann að bókinni „Barðastrandarhreppur – göngubók“. Úr þeirri vinnu þróaðist sýn á mikilvægi þess að tengja saman upplifun, náttúru og sjálfsskilning í gegnum útivist.
„Það var svo merkilegt að þegar gengið var um sveitarfélagið við gerð bókarinnar Barðastrandarhreppur – göngubók settist að ákveðinn skilningur um tengsl við landslagið og að vera órjúfanlegur hluti þess. Um tíma virtist erfitt að halda áfram skrifum án þess að tengja innra og ytra landslag, en síðar varð ljóst að þetta heyrir allt saman – fólk og landslag, fána og flóra. Við erum eitt og byggjum saman þessa jörð.“
Verkefnið byggir á þessum grunni og leggur áherslu á að efla tengsl við umhverfið með göngum og annarri iðkun. Markmiðið er að styrkja skilning á samspili manns og náttúru þar sem innra og ytra landslag mynda eina heild. Er verkefnið er hluti af alþjóðlega verkefninu Ecological Pilgrimage sem unnið verður að á næstu árum með þátttakendum víða að úr heiminum. Hér á landi koma að verkefninu sveitarfélagið, Náttúrustofa Vestfjarða, Náttúrufræðistofnun, Ferðafélag Íslands og Háskóli Íslands.