Hoppa yfir valmynd

Kynn­ingar og fundir á vegum Rannís

Mennta- og menn­ing­ar­svið Rannís sækir Vest­ur­byggð heim dagana 23.-24. sept­ember til að kynna ýmis tæki­færi og styrki sem bjóðast í alþjóða­sam­starfi.


Skrifað: 3. september 2025

Markmiðið er að kynna tækifæri sem bjóðast innan evrópskra og norrænna styrkjaáætlana:

  • Erasmus+, áætun ESB fyrir öll skólastig, æskulýðsmál og íþróttir
  • Creative Europe, kvikmynda- og menningaráætlun ESB
  • Nordplus, menntaáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar
  • Uppbyggingarsjóð EES

Rannís hvetur sveitarfélög, skóla, fræðsluaðila, menningarstofnanir, æskulýðsgeirann, íþróttafélög, fyrirtæki, ungt fólk og öll sem áhuga hafa á alþjóðasamstarfi að nýta tækifærið og mæta. Starfsfólk okkar verður svo til taks eftir kynningarnar fyrir þau sem vilja ræða möguleikana í norrænu og evrópsku samstarfi nánar.

Kynningarnar verða sem hér segir:

  • 23. september kl. 12:00-13:00 — Opinn kynningarfundur á Bíldudal, á Vegamótum. Súpa í boði.
  • 23. september kl. 16:30-18:00 — Opinn kynningarfundur í Félagsheimilinu á Patreksfirði. Kaffi og með því.

Starfsfólk Rannís mun einnig heimsækja skóla og fleiri stofnanir í ferðum sínum.Vinsamlegast sendið fyrirspurnir um fundinn til Evu Einarsdóttur kynningarfulltrúa á netfangið eva.einarsdottir@rannis.is eða í síma 691 3351.