Hoppa yfir valmynd

Lagning ljós­leiðara á Tálkna­firði

Míla í samstarfi við sveit­ar­fé­lagið hyggst leggja ljós­leiðara í þétt­býli á árinu 2026. Um er að ræða fram­kvæmdir á Tálkna­firði.


Skrifað: 28. janúar 2026

Framkvæmdin er styrkt með átaki stjórnvalda um að klára ljósleiðaravæðingu landsins fyrir árslok 2026. Áformað er að framkvæmdir hefjist í Tálknafirði næsta vor en nánari upplýsingar veitir Míla. Framkvæmdaráformin eru auglýst á heimasíðu Mílu, sjá hlekk neðst í fréttinni.

Notendur þurfa ekki að greiða tengigjald eða aðra hlutdeild í kostnaði við lögn að inntakskassa samþykki þeir að lögð sé til þeirra tenging. Kjósi notendur að taka tengingu síðar má búast við umtalsverðum viðbótarkostnaði til þeirra þar sem framlag Fjarskiptasjóðs og/eða sveitarfélagsins verður þá ekki í boði og samlegðaráhrif falla út.

Óski fyrirtæki eftir samstarfi í framkvæmdum á einstaka svæðum skal beina slíkri fyrirspurn til Mílu með tölvupósti á netfangið mila@mila.is við fyrsta tækifæri og að minnsta kosti innan 30 daga frá birtingu tilkynningar þessar svo hægt sé að tryggja að hönnun verkefnis geri ráð fyrir samnýtingu lagnaleiða innan framkvæmdartímans.

Verkefnastjóri á umhverfis- og framkvæmdasviði

magnusar@vesturbyggd.is/+354 842 5335