Landsdómaranámskeið og opið hús í borðtennis
Sunnudaginn 22. febrúar fer fram landsdómaranámskeið í borðtennis í íþróttahúsinu Bröttuhlíð á Patreksfirði. Námskeiðið hefst kl. 10:30 og lýkur með landsdómaraprófi.
Leiðbeinandi er Jóhannes Bjarki Urbancic Tómasson, alþjóðadómari í borðtennis.
Námskeiðið er ætlað þjálfurum og öðrum áhugasömum og er frábært tækifæri til að dýpka þekkingu á reglum íþróttarinnar.
Í tengslum við námskeiðið verður opið hús í borðtennis kl. 13:30 þar sem iðkendur, fjölskyldur og aðrir áhugasamir geta komið, prófað að spila og kynnt sér íþróttina. Allir velkomnir.
