Hoppa yfir valmynd

Lausar stöður í Tálkna­fjarð­ar­skóla árið 2025-2026

Tálkna­fjarð­ar­skóli er samrekinn grunn- og leik­skóli þar sem fram fer öflugt og fram­sækið skólastarf. Áhersla er lögð á að koma til móts við hvern og einn nemanda. Skólinn er öflugur græn­fána­skóli, heilsu­efl­andi skóli og UNESCO skóli.


Skrifað: 9. maí 2025

Lausar til umsóknar eru tvær stöður:

Umsjónarkennari á unglingastigi og íþróttakennari:

Starfssvið

  • Almenn kennsla og/eða íþrótta- og sundkennsla.
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
  • Vinna samkvæmt stefnu skólans.
  • Vinna að því að skapa gott andrúmsloft í skólanum og tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks.
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leyfi til að nota starfsheitið kennari.
  • Reynsla og áhugi á að starfa með börnum á grunnskólastigi.
  • Lipurð í samskiptum, jákvæðni og sveigjanleiki í starfi.
  • Faglegur metnaður.
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Færni í að vinna í teymum og að fjölbreyttum verkefnum.
  • Skipulögð vinnubrögð, sjálfstæði og frumkvæði, góðir samskiptahæfileikar og þjónustulund.
  • Getur tileinkað sér skólastefnu Tálknafjarðarskóla, s.s. Heillaspor o.fl.
  • Góð íslenskukunnátta.

Umsóknarfrestur er til og með 21. maí 2025

Laun eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag. Umsækjendur mega hvorki hafa hlotið refsidóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga (kynferðisbrot), nr. 19/1940 frá því að hann var sakhæfur (15 ára) né hafa hlotið refsidóm fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, á síðastliðnum fimm árum. Rétt er að vekja athygli á því að við ráðningu er heimilt að sækja upplýsingar úr sakaskrá.

Umsókn um starf skal fylgja skrá yfir menntun og starfsferil og afrit af leyfisbréfi ef við á og upplýsingar um umsagnaraðila.

Frekari upplýsingar gefur Magnús Arnar Sveinbjörnsson, sviðsstjóri fjölskyldusviðs. Umsækjandi er aðstoðaður við að finna húsnæði og veittur er flutningsstyrkur. Umsóknir skulu berast á netfangið magnusarnar@vesturbyggd.is. Vesturbyggð áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

Sviðsstjóri fjölskyldusviðs

MAS

magnusarnar@vesturbyggd.is/+354 450 2300