Leikskólakennari – Araklettur
Leikskólakennari óskast til starfa við leikskólann Araklett á Patreksfirði.
Um er að ræða 100% starf, en hlutastarf getur verið möguleiki.
Á Arakletti fer fram mikið og metnaðarfullt starf, þar sem áherslan er á samskipti og að vera góðir vinir, ásamt ásamt sköpun og sjálfstæði barnanna. Við erum í góðum tengslum við náttúru og nærumhverfi og einnig er gott samstarf á milli leikskóla í svetiarfélaginu og mikill stuðningur við starfsfólk. Við erum stolt af að geta boðið uppá húsnæði sem uppfyllir nútíma kröfur og starf sem er í rífandi þróun, þar sem við erum meðal annars að innleiða Heillaspor í samstarfi við Miðstöð Menntunar og Skólaþjónustu. Á ári hverju eru um 40-50 börn og 12-15 kennarar sem koma saman á Arakletti og sköpum við saman leikskóla tækifæranna – bæði fyrir börn og starfsfólk.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Að vinna að uppeldi, menntun og faglegri umönnun barnanna.
- Vera leiðandi í að efla nám barnanna með þáttöku í leik.
- Skráning og ígrundun m.a. á tengslum og leik barna.
- Taka þátt í skipulagningu faglegs starfs, gerð skólanámsskrár, mati á starfsemi leikskólans, innleiðingu á Heillasporum og fleiri verkefnum.
- Teymisvinna, foreldrasamstarf og fleiri verkefni samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara og aðalnámsskrá leikskóla.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi.
- Leikskólakennaramenntun og/eða leyfisbréf kennara.
- Reynsla af uppeldis – og kennslustörfum með ungum börnum.
- Sjálfstæð og skipulög vinnubrögð.
- Góðir samvinnu- og samskiptahæfileikar.
- Góð íslenskukunnátta.
Umsóknarfrestur er til og með 21. maí 2025
Laun eru samkvæmt kjarasamningum Sambands Íslenskra Sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Vakin er athygli á því að ef við náum ekki að ráða kennara kemur til greina að ráða annað háskólamenntað fólk eða leiðbeinendur. Allir einstaklingar, óháð kyni og búsetu eru hvattir til að sækja um starfið með því að senda tölvupóst á leikskólastjóra, araklettur@vesturbyggd.is. Umsókn fylgi, leyfisbréf, ferlisskrá og rökstuðningur fyrir hæfni í starfi. Umsækjandi er aðstoðaður við að finna húsnæði og veittur er flutningsstyrkur.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Bergdís Þrastardóttir, leikskólastjóri.