Leikskólakennari í Vinabæ
Leikskólakennari óskast til starfa við leikskólann Vinabæ á Tálknafirði. Um er að ræða 100% starf, en hlutastarf getur verið möguleiki.
Vinabær er hluti af Tálknafjarðarskóla, samreknum grunn- og leikskóla þar sem fram fer öflugt og framsækið skólastarf. Áhersla er lögð á að koma til móts við hvern og einn nemanda. Skólinn er öflugur grænfánaskóli, heilsueflandi skóli og UNESCO skóli.
Helstu verkefni og ábygð
- Að vinna að uppeldi, menntun og faglegri umönnun barnanna.
- Vera leiðandi í að efla nám barnanna með þáttöku í leik.
- Skráning og ígrundun meðal annars á tengslum og leik barna.
- Taka þátt í skipulagningu faglegs starfs, gerð skólanámsskrár, mati á starfsemi leikskólans, innleiðingu á Heillasporum og fleiri verkefnum.
- Teymisvinna, foreldrasamstarf og fleiri verkefni samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara og aðalnámsskrá leikskóla.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi.
- Leikskólakennaramenntun og/eða leyfisbréf kennara.
- Reynsla af uppeldis – og kennslustörfum með ungum börnum.
- Sjálfstæð og skipulög vinnubrögð.
- Góðir samvinnu- og samskiptahæfileikar.
- Góð íslenskukunnátta.
Umsóknarfrestur er til og með 2. júní 2026
Laun eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag. Umsækjendur mega hvorki hafa hlotið refsidóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga (kynferðisbrot), nr. 19/1940 frá því að hann var sakhæfur (15 ára) né hafa hlotið refsidóm fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, á síðastliðnum fimm árum. Rétt er að vekja athygli á því að við ráðningu er heimilt að sækja upplýsingar úr sakaskrá.
Umsókn um starf skal fylgja skrá yfir menntun og starfsferil og afrit af leyfisbréfi ef við á og upplýsingar um umsagnaraðila.
Frekari upplýsingar veitir Gerður Björk Sveinsdóttir, bæjarstjóri. Umsækjandi er aðstoðaður við að finna húsnæði og veittur er flutningsstyrkur. Umsóknir skulu berast á netfangið vesturbyggd@vesturbyggd.is. Vesturbyggð áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.
