Hoppa yfir valmynd

Leik­skóla­stjóri

Auglýst er laust til umsóknar starf leik­skóla­stjóra Vest­ur­byggðar sem ber ábyrgð á faglegri forystu og daglegum rekstri leik­skólans Arakletts.


Skrifað: 31. mars 2026

Vesturbyggð vinnur að innleiðingu nýs stjórnskipulags í leik- og grunnskólum sveitarfélagsins með það að markmiði að styrkja faglega forystu, efla samstarf og þróun skólastarfs og styðja betur við litlar rekstrareiningar í dreifðu sveitarfélagi. Í sveitarfélaginu eru reknir þrír grunnskólar með leikskóladeildum auk leikskóla. Í nýju skipulagi verður lögð aukin áhersla á faglega samræmingu og samstarf milli leik- og grunnskóla. Leikskólastjóri gegnir þar lykilhlutverki, bæði í daglegum rekstri leikskóla og í faglegri þróun leikskólastarfs í sveitarfélaginu.

Leikskólastjóri Vesturbyggðar ber ábyrgð á faglegri forystu og daglegum rekstri leikskólans Arakletts. Jafnframt hefur leikskólastjóri mikilvægt hlutverk í að styðja við og samræma leikskólastarf í sveitarfélaginu, þar á meðal leikskóladeildir við grunnskólana. Dagleg stjórnun leikskóladeilda verður áfram í hverjum skóla. Leikskólastjóri er hluti af stjórnendateymi skóla Vesturbyggðar og tekur virkan þátt í þróun skólastarfs í sveitarfélaginu.

Leikskólastjóri situr í stjórnendateymi ásamt stjórnendum hvers skóla, skólastjóra Vesturbyggðar, sviðsstjóra fjölskyldusviðs og fulltrúa stoðteymis.

Helstu verkefni

  • Leiða faglegt starf leikskólans
  • Bera ábyrgð á daglegum rekstri leikskólans Arakletts
  • Styðja við og samræma leikskólastarf í sveitarfélaginu
  • Vinna að þróun og umbótum í leikskólastarfi
  • Eiga samstarf við foreldra og nærsamfélag
  • Taka þátt í stjórnendateymi skóla Vesturbyggðar

Hæfniskröfur

  • Leikskólakennaramenntun
  • Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi kostur
  • Reynsla af leikskólastarfi
  • Stjórnunar- og rekstrarreynsla æskileg
  • Góð samskipta- og samstarfshæfni
  • Skipulagshæfni og frumkvæði
  • Góð íslenskukunnátta

Umsóknarfrestur er til og með 15. apríl 2026

Nánari upplýsingar veitir Geirlaug Jóhannesdóttir á geirlaug@hagvangur.is. Sótt er um í gegnum heimasíðu Hagvangs.

Einstök náttúrufegurð prýðir sunnanverða Vestfirði og þar er ótal margt að sjá og upplifa. Í Vesturbyggð er öflugt atvinnulíf, fjölbreytt þjónusta og gott mannlíf. Góð þjónusta er í sveitarfélaginu, öflugt æskulýðsstarf, leikskólar, íþróttasvæði, verslanir, sjúkrahús, verkstæði, vélsmiðjur, trésmíðaverkstæði, bíó, ferðaþjónusta og fleira. Möguleikar til útivistar, félagsstarfa, íþrótta og afþreyingar eru fjölmargar. Vesturbyggð tekur vel á móti nýjum íbúum!