Hoppa yfir valmynd

List– og verk­greina­kennari

Leitað er að metn­að­ar­fullum, sjálf­stæðum og dríf­andi starfs­manni með mikla þekk­ingu og áhuga á skóla­starfi. Um er að ræða  allt að 100% starf, mögu­leiki er á minna starfs­hlut­falli. Starfið hefur fasta starfs­stöð á Patreks­firði en felur jafn­framt í sér mögu­leika á kennslu við annan grunn­skóla í Vest­ur­byggð.


Skrifað: 14. ágúst 2026

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leyfi til að nota starfsheitið kennari
  • Reynsla og áhugi á að starfa með börnum á grunnskólastigi
  • Lipurð í samskiptum, jákvæðni og sveigjanleiki í starfi
  • Faglegur metnaður
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Færni í að vinna í teymum og að fjölbreyttum verkefnum
  • Skipulögð vinnubrögð, sjálfstæði og frumkvæði, góðir samskiptahæfileikar og þjónustulund
  • Getur tileinkað sér skólastefnu Patreksskóla s.s. Uppeldi til ábyrgðar, Heillaspor ofl.

Umsóknarfrestur er til og með 28. ágúst 2026

Laun eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag. Umsækjendur mega hvorki hafa hlotið refsidóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga (kynferðisbrot), nr. 19/1940 frá því að hann var sakhæfur (15 ára) né hafa hlotið refsidóm fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, á síðastliðnum fimm árum. Rétt er að vekja athygli á því að við ráðningu er heimilt að sækja upplýsingar úr sakaskrá.

Umsókn um starf skal fylgja skrá yfir menntun og starfsferil og afrit af leyfisbréfi ef við á og upplýsingar um umsagnaraðila.

Frekari upplýsingar gefur Birna Friðbjört S. Hannesdóttir, skólastjóri grunskóla Vestirbyggðar. Umsækjandi er aðstoðaður við að finna húsnæði og veittur er flutningsstyrkur. Umsóknir skulu berast á netfangið birna@vesturbyggd.is. Vesturbyggð áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

Starfssvið

Allt að 100% starf