Hoppa yfir valmynd

List­sýning á grind­verki Arakletts

Börnin á leik­skól­anum Arakletti á Patreks­firði bjóða til list­sýn­ingar á grind­verki við skólann.


Skrifað: 5. júní 2026

Sýningin er lokapunktur verkefnis þar sem börnin hafa fræðst um atvinnuhætti og velta fyrir sér hvað þau langar að verða þegar þau verða stór. Með sýningunni fylgir kynningartexti á íslensku, ensku, dönsku, pólsku, frönsku og litháísku, sem eru einmitt þau tungumál sem töluð eru af börnum á Arakletti.

Við vonum að þið gefið ykkur tíma til að skoða sýninguna og fagnið með okkur fjölbreytileikanum, draumum barnanna og framtíðinni.


Araklettur leikskólastjóri

araklettur@vesturbyggd.is/+354 450 2342