Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir u.þ.b. 1 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.
Ljóðakvöld með Eiríki Erni Norðdahl
Föstudaginn 21. mars kl. 20:00 verður ljóðakvöld á prentverkstæði Skriðu í Eyrargötu á Patreksfirði.
Dagskrá:
- Skáldið, rithöfundurinn og Ísfirðingurinn Eiríkur Örn Norðdahl les upp úr nýútkominni ljóðabók sinni, Fimm ljóð.
- Birta Ósmann Þórhallsdóttir, skáld, þýðandi og snattari hjá Skriðu les upp úr óbirtum ljóðaþýðingum.
- Opinn hljóðnemi og öllum velkomið að lesa ljóð.
- Endurljóðblöndun.
Boðið verður upp á humar-fiskisúpu og harðfisk og heitt verður á könnunni. Öll velkomin!