Lóð við Bíldudalsskóla – verðfyrirspurn
Lýsing á framkvæmd
Verkið felst í fullnaðarfrágangi leikskólalóðar og áfangafrágangi á grunnskólalóð.
Helstu verkþættir eru eftirfarandi:
- Jarðvinna og undirbúningur lóðar – Gröftur, jöfnun, brottakstur og tilfærsla jarðefna, grúsarfyllingar og þjöppun burðarlaga.
- Yfirborðsfrágangur – Hellulögn, kantsteinar, gervigras, fallvarnarefni, sandsvæði og annar lokafrágangur yfirborðs.
- Kaup og uppsetning leiktækja og búnaðar – Uppsetning girðinga, timburmannvirkja, bekkja, sandkassa, leiktækja og annars útibúnaðar.
- Gróðursetning og lokafrágangur lóðar – Grassáning, þökulögn, gróðursetning trjáa og runna, frágangur gróðurbeða og endanlegur frágangur svæðisins.
Öflun útboðsgagna
Með fyrirspurninni fylgja verklýsing, tilboðsskrá og teikningar. Aðilar sem óska eftir að taka þátt í verðfyrirspurn þessari geta óskað eftir útboðsgögnum með því að senda tölvupóst á vesturbyggd@vesturbyggd.is merkt: „Lóð Bíldudalsskóla“
Í tölvupósti skal koma fram:
- nafn fyrirtækis
- kennitala
- tengiliður
- símanúmer
- netfang tengiliðar
Skilafrestur og opnun tilboða
Skilafrestur tilboða er 12. maí 2026. Tilboð skulu berast innan tilgreinds frests. Tilboð sem berast eftir frest verða ekki tekin til greina nema lög og reglur heimili annað.
Helstu dagsetningar
- Útsending verðfyrirspurnar: 21. apríl 2026
- Frestur til að óska eftir útboðsgögnum: 28. apríl 2026 kl. 12:00
- Frestur til að senda inn fyrirspurnir: 30. apríl 2026 kl. 12:00
- Svör við fyrirspurnum send út: 4. maí 2026
- Skilafrestur tilboða: 12. maí 2026 kl. 12:00
- Verklok: 1. ágúst 2026
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verða bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Fyrirspurnir og skýringar
Fyrirspurnir vegna útboðsgagna skulu berast skriflega eigi síðar en 30. apríl kl. 12:00 og skulu þær sendar á netfangið vesturbyggd@vesturbyggd.is og verður þeim svarað eigi síðar en 4. maí kl. 16:00.
Gildistími tilboðs
Tilboð skulu vera bindandi í 30 daga frá opnunardegi nema annað sé tekið fram.
Réttur verkkaupa
Verkkaupi áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum tilboðum ef það er talið þjóna hagsmunum verkkaupa.
Samningur og verktími
Gerður verður skriflegur verksamningur við valinn verktaka áður en framkvæmdir hefjast. Verktími er áætlaður frá undirritun verksamnings til 01.08.2026
Fylgiskjöl
- Verklýsing
- Tilboðsskrá
- Teikningasett