Markaðskönnun vegna mögulegra virkjunarframkvæmda í Hólsá í Tálknafirði
Markaðskönnun þessi er undanfari mögulegra virkjunarframkvæmda í Hólsá á Tálknafirði en sveitarfélagið er eigandi lands umhverfis Hólsá
Skrifað: 5. ágúst 2026
Umhverfis- og framkvæmdasvið Vesturbyggðar leitar eftir áhugasömum framkvæmdaraðilum við vatnsaflsvirkjun í Hólsá Tálknafirði en með markaðskönnun þessari er markmiðið að kanna áhuga þátttakenda til mögulegs samstarfs en sveitarfélagið vill gæta að því að gagnsæi og jafnræði meðal áhugasamra aðila sé tryggt og styðja við virka samkeppni. Sérstaklega skal tekið fram að þátttaka, sem og engin þátttaka, í markaðskönnun þessari mun ekki hafa áhrif á niðurstöðu mögulegs útboðs eða tilboðsleitana.
Í mars árið 2020 kom út skýrsla sem Verkís vann fyrir Vestfjarðastofu þar sem gerð var frumúttekt á hagkvæmni 68 virkjanakosta á Vestfjörðum. Þar kom í ljós að víða er að finna hagkvæma og álitlega virkjanakosti . Virkjun Hólsár í Tálknafirði virtist mögulega hagkvæmur kostur í þessari úttekt.
Eftirfarandi tafla er tekin ú þeirri skýrslu.

Eftirfarandi kennitölur eru þekktar um Hólsá.

Sem fyrr segir er sveitarfélagið eigandi að landi á Tálknafirði þar sem Hólsá liggur.
Gert er ráð fyrir að virkjun sem reist yrði á svæðinu væri undir 10 MW og myndi þannig flokkast til smávirkjana.
Sveitarfélagið Vesturbyggð leitast eftir að eiga samtal við þátttakendur vegna mögulegra virkjunarframkvæmda í landi sveitarfélagsins. Um væri að ræða óbindandi samtal um tillögur að samstarfi.
Áhugasömum aðilum sem vilja eiga viðræður við sveitarfélagið er bent á að hafa samband í tölvupósti á netfangið geir@vesturbyggd.is með efnisheitinu „Virkjunarframkvæmdir í Hólsá í Tálknafirði“ með upplýsingum um þátttakanda, þar með talið tengilið vegna samtals.
Frestur til að skila inn tillögum er til 15. september 2026
Vesturbyggð ábyrgist með engu móti að markaðskönnun þessi endi með útboði eða samþykki á tilboði í framkvæmdirnar.
