Metþátttaka HHF á Silfurleikum ÍR
Alls munu 23 keppendur frá Héraðssambandinu Hrafna-Flóka taka þátt í Silfurleikum ÍR sem fram fara í Laugardalshöllinni í Reykjavík laugardaginn 21. nóvember. Um er að ræða metþátttöku hjá félaginu og ánægjulegan áfanga í vaxandi frjálsíþróttastarfi.
Keppendur HHF eru á ýmsum aldri og fyrir suma þeirra verða Silfurleikarnir fyrsta reynslan af keppni á frjálsíþróttamóti. Þátttakan endurspeglar þann vöxt sem hefur orðið í frjálsíþróttastarfi félagsins og aukinn áhuga á íþróttinni.
Félagið hvetur foreldra, félagsfólk og aðra stuðningsmenn til að mæta í félagslitunum og styðja við bakið á keppendum.
Sveitarfélagið óskar öllum keppendum góðs gengis
